Jćja....!Harpa&Jóhanna
heyrðu það er nú bara nokkuð satt þessi síða er frekar slöpp... en ég verð að reyn að gera eikkað í þessu koma með einhverjar myndir og svona. en já það hefur ekkert gerst hjá mér síðan nýja árið byrjaði ég er bara búin að vera á fullu að læra af því að ég er í prófum, ég er búin með 4 próf og á 3 eftir svo fer ég vonandi heima að reyna að vinna eitthvað..! ef ég fæ einhverja vinnu það er að segja...Síðasta helgi var frekar slöpp hjá okkur enda helvítis stærðfræðipróf á mánudeginum, en ég og Harpa ákáðum að skella okkur í smá rúnt með Ella,Tóta og Ingó. Þetta byrjaði sem alveg ósköp venjulegur rúntur, en þá tóku þeir upp á því að að fara að rúnta inn eyarfjörðinn og ætluðu nú heldur en ekki að drífa sig i einhverja sundlaug sem átti að vera innst í firðinum... þannig að við keyrðum inn allan fjörðinn alveg 50 km eða eikkað og vorum með augun vel vakandi, en NEI! þegar við vorum búin að keyra svona 47 km þá fór hann Ragnarsson að segja að hann vissi nú eiginlega ekkert um þessa sundlaug!! þannig að við þurftum að snúa við þegar við komum á endan á firðinum af því að Tóti og Ingó þorðu ekki að banka á eikkað hús þarna af því að þeir voru alveg vissir um að það byggju morðingjar þar!! á leiðinni til baka þá ákváðu þeir að fara í smá torffærur á þessu líka ''kagga'' og það rakst alveg heiftarlega undir bílinn ég hélt á tímabili að vegurinn ætlaði bara að koma í gegn!! það var bara svo mikill snjór að Elli sá ekki hvað vegurinn var ömurlegur... þannig að það var ráðgáta að komst til baka, en tóti sá um það af því að Elli greyið treysi sér bara alls ekki í það.. en við komumst allavega heil heim....!
Ég er farin að Hlakka svo til að komast heim á þorrablót að ég er að deyja það er svo drepleiðinlegt að gera ekkert nema að sitja á rassgatinu og læra! en þetta fer að ganga yfir við þórshafnar kúlurnar ætlum að chilla eikkað heima hjá tóta um helgina og hafa það nice það verður hressandi úff.. en ég hef því miður bara ekkert meira að segja ég lofa að setja inn myndir af þorrablótinu.. ég er svo mögnuð!
bloooggHarpa&Jóhanna
Vegna margra kvartana hef ég ákveðið að blogga pínu.. en þar sem ég hef ekkert að segja þannig að ég ákvað að setja bara inn þessar örsuttu myndasögur




Jæja.. that's it for today
-harpa
=)Harpa&Jóhanna
Þessi síða er að rotnaHarpa&Jóhanna
Þá er komið að því. ég er að farasuður eftir sirka 2 tíma ;) að hitta hann Ara =) hann er búinn að baka súkkulaði tertu fyrir mig og fínerí til að ég fáinú eitthvað gott að borða hjá honum ;) hann er nú svolítil húsmóðir í sér, ég verð að viðurkenna það. Það verður allavega fjör um helgina ég verð þarna alveg þar til á þriðjudagsmorguninn.. ahh það verður sweet ;)
En svo er ég alvarlega að pæla í að fara á saw 3 þegar hún kemur. ég sá á netinu í dag að fólk í usa minnir mig hafi ælt og læti á henni, svo leið yfir 2 fullorðna karlmenn og eina konu :O
Svo er ég alveg að brillera í Frönsku, kannski ekki með að vera góð eða þannig, það er bara mikklu skemmtilegra að læra þetta tungumál en ég bjóst við, ég er fegin að hafa ekki farið í Þýsku =D
Smá svona í lokin ;)

Harpa ;P
Homer ;DHarpa&Jóhanna
Jæja þá er komið að því langa helgin að fara að ganga í garð og þá... ég...heim... :D það er alltaf gott að fara heim öðru hverju! HITTA ELSKUNA MÍNA :D hann Hlyn Andra. ég var eikkað að spjalla við móður mína í gær og við ákváðum að í sameiningu að ég ætlaði að bjóða litla bróðir mínum í heimsókn eina góða helgi, þá þyrfti ég að vera spök góð stelpa og fara að sofa kl 8 og vakna kl 8 eða eikkað álíka en það er þess virði að fá litla englabossann í heimsókn :DHarpa ætlar ekki heim heldur ætlar hún að skella sér til rvk að hitta kallinn sinn. ég myndi sko ekki vilja sleppa því að fara heim sko það er svo gott að fá að sofa í rúminu sínu og hafa það gott. þeð væri allt öðruvísi ef maður byggi í íbúð því að þá væri maður heima. þessvegana ætla ég ekki að vera á vistinna á næsta ári af því að ég ætla að vera í íbúð! og hana nú!
Það er alltaf nóg að gera í helví.... skólanum! það þarf að gera svo mikið heima að maður getur nánast ekki gert neitt annað :O og það er ekki gott. en ég vona að þetta fari að minnka. en nú sit ég bara í íslensku og er ekki að gera rassgat nema að hlusta á upplestur á ljóðum góðum ;)
en já ég hef nú ekki meira að segja í bili alveg búin sko! ég er búin að vera svo dugleg marr!
Djójó
viltu falla á prófi?Harpa&Jóhanna
Fann þetta á einhverri síðu og langaði bara að deila því með ykkur ;)1. Taktu með þér kodda. Leggðu þig þangað til svona 5mín eru eftir af prófinu, öskraðu þá.."ahhhllllveg rétt, prófið var í dag!!"
2. Fáðu eintak af prófinu, hlauptu svo út úr stofuni öskrandi "loksins!! loksins!!"
3. Ef þetta er stærðfræðipróf, svaraðu i löngum setningum... ef þetta er ritgerðarpróf, svaraðu í tölum
4. Gerðu pappírsskutlu úr prófinu og miðaðu á kennarann
5. Talaðu alla leið í gegnum prófið! Lestu spurningarnar upphátt og farðu svo að rífast við sjálfan þig hvert rétta svarið skyldi vera. Ef þú ert beðin um að hætta, segðu "jújú, og þú getur bara heyrt mig hugsa" .....talaðu svo um hvað kennarinn er mikið fíbbl.
6. Taktu með klappstyrur
7. Eftir svona 5mín af prófinu... kallaðu þá á kennarann "hvað er þetta?? ég hef mætt í tíma alla önnina og ég skil ekkert í þessu!!! og hver ert þú eiginlega?!?!
8. Taktu með þér GameBoy tölvu.... spilaðu með volume-ið í botni
9. Neitaðu að svara spurningum... t.d. ég neita að svara þessari spurningu því hún skarðast á við trúarbrögð mín!!
10. Taktu með gæludyr!
11. Hlauptu inní stofuna þegar prófið er rétt byrjað... segðu við kennarann "þeir fundu mig... ég verð að flyja land!" og hlauptu út aftur!
12. Eftir svona 5mín af prófinu, stattu upp, rífðu það niður í pínulitla búta og hentu uppí loftið og öskraðu GLEÐILEG JÓL!! ....biddu kennarann um annað próf og segðu að þú hafir tynt hinu...
13. Skrifaðu svörin með vaxlitum eða vatnsmálningu
14. Mættu í prófið í sandölum, baðslopp og handklæði á hausnum.
15. Fáðu alltíeinu kast af Tourette's Syndrome í miðju prófi...
16. Svaraðu prófinu á einhverju öðru tungumáli! ... ef þú kannt ekki annað tungumál, gerðu þitt eigið tungumál!!
17. Hentu drasli í kennarann þegar hann er ekki að horfa... bentu svo á sessunaut þinn!
18. Strax og kennarinn lætur þig fá prófið... éttu það!
19. Komdu með heilt kvikmyndatökulið með þér og segðu að þú viljir taka prófið upp!
20. Á 5 mínútna fresti, taktu saman allt draslið þitt, sestu annarstaðar og heldur áfram að taka prófið
21. Strikaðu yfir bæði spurningarnar og svörin með svörtum túss!
22. Fáðu prófið, eftir tíu mínútur, dúndraðu prófinu í borðið þitt, öskraðu "til anskotans með þetta próf!!" og labbaðu hetjulega út!
23. Fáðu fólk til að mótmæla prófinu... (með spjöldum og alles)
24. Mættu algjörlega haugafullur!!! (haugafullur: sumsé miklar líkur að þú ælir)
25. Vertu endalaust að segja hversu sexí kennarinn er þennan daginn!
26. Taktu með þér vatnsbyssu
27. Mættu klæddur í riddarabúning! ....með sverð og skjöld!
28. Þegar þú labbar inn... kvartaðu yfir hitanum... strippaðu
29. Reyndu að fá sessunautana til að gera "bylgju"
30. Mættu með hljóðfæri! segðu að það hjálpi þér að hugsa...
-Harpa-
=)Harpa&Jóhanna
erum ið náttúrufræði.. við vorum í prófi og ég komst víst að því að ég hafði alls ekki verið að læra rétu hlutina fyrir þetta próf. En allava þá skiptir það ekki því þetta gildir víst ekki niett.. en vá ég hef bara akkúrat ekki neitt að segja.. hey jú Ari er að koma um helgina :D:D .. og helgina eftir það fer ég suður og verð í fimm daga eða e-ð.. það er sko löng helgi :D
en okey ég segi þetta bar agott í bili.. er engan veginn að nenna að bula eð hérna
-Harpa-
Harpa&Jóhanna
Aldrei í lífinu - myndi ég halda framhjáÞegar ég var fimm ára – átti ég heima í Hafnarfirði
Grunnskóla árin voru – bestu ár lífs míns.. neei djók, þau voru svosem fín
Ég hitti/sá einu sinni – Jónsa í svörtum fötum og spilaði olsen olsen við hann
Síðastliðna nótt – avaf ég ein æa vistinni.. Jóhanna stakk af!!
Þegar ég sný hausnum til vinstri sé ég – Náttborðið á vistinni, lampa, glas með pepsi max, nammi lítinn sætann bangsa ;) hulstur af friends spólu og lykil =)
Þegar ég sný hausnum til hægri sé ég – Jóhönnu í tölvu í sínu rúmi
Þegar ég verð gömul/gamall – ætla ég að vea rík og fræg!!
Um þetta leyti á næsta ári – verð ég komin með bílpróf
Betra nafn fyrir mig væri – Allavega EKKI Harpó!!!
Ég á erfitt með að skilja – margt og mikið
Þú veist mér líkar vel við þig ef – ég hunsa þig ekki =)
Fyrsta manneskjan til að eignast barn í þínum vinahóp væri – Aðalbjörgin gæti verið .. eða kannski herra norðurlandsfrúin
Uppáhalds morgunmaturinn minn er – Kellog's spcial K eða ristað brauð ;)
Afhverju myndir þú hata mig – Ef þú ert leiðinleg/ur við mig
Heimurinn mætti alveg vera án - Kóngulóa
Ég myndi frekar sleikja svínsrass en að – vera blind !!
Ef ég geri e-ð vel.. – er ég ánægð eftir á... eða nei veit ekki :S
-Harpa
litla hetjanHarpa&Jóhanna
Lífreynsla Hilmis Þann örlagaríka dag 8 Desember 2003 fékk ég símtal frá mömmu minni og hún sagði mér það að Hilmir (litli bróðir minn) hefði ælt blóði og hefði verið sendur til Akureyrar til að láta skoða hann. Ég man þegar hún sagði mér þetta þá fannst mér þetta ekkert mál af því að ég hugsaði bara að það gæti nú ekki verið eitthvað alvarlegt að. En raunin var önnur. Hann var rannsakaður og þá kom í ljós að svokallaðar átfrumur voru búnar að missa stjórn á sér og byrjaðar að éta heilbrigðu hvítu blóðkornin og miltað var einnig of stórt. Þetta fékk ég að vita þegar ég kom úr skólanum einn daginn og sá að mamma sat grátandi við eldhúsborðið þegar ég kom inn og Rannveig nágranni okkar var hjá henni. Þegar ég sá hana gráta fékk ég sjokk en sagði ekki orð heldur labbaði inn í herbergi án þess að vita neitt og hágrét, eftir smá stund kom mamma til mín og sagði mér hvað amaði að honum og sagðist þurfa að fara suður af því að hann hafði verið sendur þangað eftir að allt kom í ljós og að það ætti að rannsaka hann betur þar. Stuttu eftir að Hilmir kom til Reykjarvíkur kemur hlaupabóla í ljós og þá var hann settur í einangrun. Hann varð alltaf veikari og veikari og var einnig orðinn mjög blóðlaus Þá var hann settur í magaspeglun og þá kom í ljós að hann var með blæðandi magasár. Hlaupabólan getur verið hættuleg fyrir þá sem eru eitthvað veilir fyrir og það var einmitt það sem gerðist við Hilmi. Það var hlaupabóluvírusnum að kenna að hann hefði fengið magasár og sýkingu í blóðið. Læknarnir héldu strax að hann væri með hvítblæði vegna þess að þetta með átfrumurnar lýsti sér eins. Honum var gefið krabbameinsskylt lyf og þá hættu átfrumurnar að éta hvítu blóðkornin.Hann var rannsakaður betur vegna þess að hlaupabóla gerir svona lagað ekki nema að smitberinn sé eitthvað veill fyrir. Þá finna læknarnir blóðtappa í aðalæðinni milli lifrarinnar og miltans svokölluð portalæð, hann greindist með portal hypertensio (háþrýstingur vegna blóðtappa).Það var lengi gert að finna það sem amaði að litlu elskunni, vegna þess að þetta er allt mjög sjaldgæft. Þegar 7 ára barn fær blóðtappa er það alveg jafn sársaukafullt og þegar fullorðinn maður fær hann. Þannig að læknunum fannst mjög skrítið að Hilmir hefði ekki orðið var við það. Þeir vissu heldur ekki hvernig og afhverju í ósköpunum hann fékk þennan óútskýranlega blóðtappa. Það byrjaði náttúrulega með því að hann var alltof blóðlítill og með alltof fáar blóðflögur og fá hvít blóðkorn. Þeim datt helst í hug að hann væri með lifrarsjúkdóm, þannig að það var tekið lifrarsýni, en það amaði ekkert að henni. Eftir að þetta kom allt í ljós var ákveðið að senda hann til Bandaríkjanna í stóra aðgerð. Mamma og pabbi fóru bæði með honum og læknirinn hans Hilmis, Lúther Sigurðsson fylgdi þeim út. Samkvæmt áætlun áttu þau að vera í tvær vikur úti það var búið að ákveða daginn á aðgerðin og allt klárt. En það gekk svo sannarlega ekki eftir. Þegar þau komu út þá vildu læknarnir þar reyna að finna hvað var að. Hann fór tvisvar í þræðingu aftur í lifrarástungu og ótal blóðprufur. Í eitt skiptið voru tekin tuttugu blóðglös úr honum og eftir tólf glös steinlá hann, en þá var hann bara lagður á bekk og haldið áfram að dæla úr honum. Rannsóknirnar tóku samtals einn mánuð, og 19. október fór litla greyið loksins í aðgerðina. Markmiðið með aðgerðinni var að tengja blóðflæðið framhjá lifrinni (hjáveituaðgerð) blóðið fer ekki í gegnum lifrina á honum eins og hjá venjulegu fólki. Þetta var mjög stór aðgerð og skurðurinn nær þvert yfir magann á honum. Eftir aðgerð var hann í tvo sólahringa á gjörgæslu og mamma og pabbi skiptust á að sitja yfir honum.Eftir fjóra daga fór hann aftur að slappast og mamma reyndi að segja læknunum að það væri ekki allt með felldu en þeir hlusta ekki á hana. Síðan eitt kvöldið var mamma að leiða hann á klósettið þá leið yfir hann og hann datt á baðgólfið. Mamma kallaði á hjálp og eftir nokkrar mínútur var litla sjúkrahúsherbergið troðfullt af læknum og hann var samstundis fluttur á gjörgæslu og slanga þrædd niður hálsinn á honum og niður í maga og þá kom í ljós að æðarnar í vélindanu hefðu sprungið og maginn á honum var fullur af blóði. Þá voru mamma og pabbi send út og önnur aðgerð var gerð. Blóðið var dælt upp úr maganum á honum og hnýtt fyrir æðarnar í vélindanu. Eftir aðgerðina fengu mamma og pabbi að koma inn, þá lá litla elskan miður sín í rúminu og grét, og mamma sagði að það hefði verið svo skrýtið af því að hún heyrði ekki í honum gráta útaf öndunarvélinni. Sá bara tárin vella niður fölar kinnarnar. Eftir aðgerðina var hann í fjóra sólarhringa á gjörgæslu og þar var engin aðstæða til að leggja sig þannig að mamma og pabbi þurftu að sitja á stól hjá honum. En ekki er raunin á enda, eitt atvikið enn kom upp. Brisið var tekið meðan fyrri aðgerðin var framkvæmd og það spýtir ensími inn í meltinguna en það ruglaðist eitthvað og fór að spýta því inn í blóðið. Þannig að hann mátti nú ekki borða í tvær vikur og mátti nú alls ekki við því. Hann fékk næringu úr legg sem var tengdur í lærið á honum. Hann grét úr hungri heilu klukkustundirnar, og þegar ég fékk að heyra í honum öðru hverju þá sagði hann mér í hvert skipti hvað hann langaði mikið í flögur og ostasósu. Ég tárast bara við tilfinninguna því það er ekki hægt að ímynda sér hvernig þessu litla hjarta hefur liðið að ganga í gegnum þetta allt saman aðeins 9 ára gamall.Þessar tvær vikur sem hann átti að vera úti breyttust í tvo mánuði og ég var ein heima á meðan og Hlynur minnsti bróðir minn sem var 2 ára þá var hjá Drífu frænku okkar. Við skátarnir og kvenfélagið á Þórshöfn héldum styrktarsamkomur til þess að afla fjár fyrir fjölskylduna mína.Hilmir útskrifaðist af barnaspítalanum 22 Desember árið 2003 (pabbi 40 ára) og var aftur lagður inn tveimur árum seinna 17 september (mamma 40 ára) og í bæði skiptin var ég í prófum og það var ekki auðvelt að einbeita sér af lærdómnum þegar svona hendir litla bróður manns.Þau komu svo heim um miðjan nóvember og Hilmir var þá í viku á barnaspítalanum. Þessi aðgerð sem var gerð átti að laga þrýstinginn á æðakerfinu, en það eina sem gekk til baka var það að æðarnar í maganum löguðust en miltað er enn jafn stórt og æðar í vélinda einnig mjög stórar. Þetta voru mikil vonbrigði fyrir bæði fjölskyldu og lækna. En svona fór þetta nú allt saman en það eina sem ég get sagt að hann Hilmir Vagn er algjör hetja og það ættu allir að vera stoltir af svona hugrökkum ungum manni.eftir aðgerðina
Farin að hressast